Setja á Facebook
Umsagnir
Upplifun mín á lyftingarnámskeiði
Sunnudagur, 11 Október 2009 21:09
Frábær vellíðan eftir alla tímana.
Komst að því að 90 mín tímarnir fljúga – fram til þessa hef ég sjaldan lagt í að fara í 90 mín ástundunartíma.
Misjafnar vikur varðandi matarræðisfyrirmæli – það sem virkaði best var að borða ekki eftir kl. 18:00
Lesa meira...
 
Það sem kom mér mest á óvart
Sunnudagur, 11 Október 2009 21:07

Elsku Elín og Ásgerður.
Takk fyrir mjög gott námskeið með lyftingum og rope joga.  Ég tók ákvörðun þegar ég byrjaði hjá ykkur þann 31. ágúst að taka ábyrgð á eigin líðan bæði líkamlegri og andlegri.
Ásetningur minn er að næra uppbyggingu, vellíðan og jákvæða hluti og hætta að næra sjálfsvorkunn, leiða,  fórnarlambið og annað sem vanlíðan veldur.

Lesa meira...
 
Ég fékk mjúka„JÓLAGJÖF“
Miðvikudagur, 25 Mars 2009 22:55

Ég fékk mjúka„JÓLAGJÖF“
Kona mín gaf mér 6 vikna öflugt Rope yoga lyftingarnámskeið hjá Elínu.is í Bæjarhrauninu í jólagjöf. Ég hélt að þetta væri eitthvert spaug hjá henni þar sem hún gaf mér einnig spilastokk sem er af stærðinni A4. En eftir áramót  þá áttaði ég mig á því að ég „varð“ að gera eitthvað í mínumálum. Fötin voru hætt að passa á  mig og formið var ekki gott.

Lesa meira...
 
Ég elska mig og treysti
Mánudagur, 23 Mars 2009 10:04

Að fá tölvupóst með auglýsingu um sex vikna námskeiðið var eins og að fá
hent til mín kaðli svo ég gæti híft mig upp úr drullupollinum sem ég hafði
komið mér í, sem sé "ég var hætt að vera til staðar,ég  nærði verki,var þreytt og
leið og safnaði kílóum." Námskeiðið er frábært, ég er komin upp úr
drullupollinum, hætt að safna kílóum (11 kíló farin á 5 vikum) verkir og þreyta eru farin og ég er hamingjusöm.
Kæra Elín og kæra Margrét Ýr takk fyrir að vera leiðbeinendur mínir á
námskeiðinu, þið eruð yndisleg ljós.
Árangur mínn af námskeiðinu er líst í þessum fallegu orðum "ÉG ELSKA MIG OG
TREYSTI"  

Kærleikskveðjur Linda Líf
 
Ég er núna á mínu þriðja námskeiði
Miðvikudagur, 18 Mars 2009 16:24

Lyftinga / Rope yoga námskeiðin sem Elín er með núna eru frábær. Þau sameina alla kosti Rope yoga en bæta við góðum styrktar lyftingaæfingum fyrir alla vöðvahópa auk þess sem þátttakendur endurskoða og bæta mataræðið verulega. Ég er núna á mínu þriðja svona námskeiði og mæli hiklaust með þeim við alla óháð því hvort viðkomandi stefnir að því að létta sig eða ekki. Námskeiðin eru mjög persónleg og hlýtt viðmót þeirra Margrétar og Elínar er eitthvað sem maður finnur ekki víða.

Takk kærlega fyrir mig :)
 
kær kveðja
Gunna

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 10