Skráning er hafin fyrir janúar 2010
Við bjóðum uppá nokkur byrjendanámskeið, ástundunartíma fyrir vana, námskeið fyrir eldir borgara og lyftingarnámskeið.
Öll byrjendanámskeið standa yfir í 8 vikur og eru annað hvort 2x90 mín. 2x70 mín. eða 3x70 mín. á viku. Á byrjendanámskeiðum eru kenndar vel æfingarnar í böndunum, flæðiæfingar, öndunaræfingar og teygjur. Einnig er farið í hugmyndafræði Rope Yoga og farið yfir öll 7 þrepin ásamt hámarsnýtingu næringar ofl.
Ástundunartímar eru fyrir vana iðkendur og leiddir áfram af kennara og þar er farið í böndin, flæðiæfingar, teygjur, stöður og öndunaræfingar. Í ástundun er einnig farið í hugmyndafræði Rope Yoga ofl. Tímar fyrir eldri borgara eru sniðnir fyrir eldri borgara og eingöngu gerðar æfingar sem henta eldri borgurum. Æfingar í böndunum, teygjur, flæðiæfingar, hugmyndafræði, öndunaræfingar og slökun. Lyftingarnámskeiðin eru lokuð námskeið með tveimur kennurum og aðeins 15 í hóp. Á þessu námskeiði kennum við einnig góða tækni í lyftingartækjum og lóðum. Við leggjum mikið uppúr hámarksnýtingu næringar og hvatt er til breytingar í matarvenjum. Mjög kröftugt námskeið. Endilega lítið á val vinstra megin til að fá nánari upplýsingar um hvert námskeið fyrir sig.
|