Setja á Facebook
Hugleiðsla

Hvað er hugleiðsla.

Að týna sjálfum sér

Langflest okkar eru fjarverandi og annars hugar, upptekin af  fortíðinni og bíðum eftir framtíðinni. Við erum varla mætt á einn stað þegar við byrjum að flýta okkur á þann næsta.

Kannast ekki flestir við að vilja framkvæma margt á sömu stundu,til dæmis þegar við erum í heilsurækt þá finnst við þurfa að vera heima og þrífa eða í vinnunni? Sem sagt, hugurinn er á allt öðrum stað en líkaminn. Við hreinlega “týnum”okkur.  Flestir þekkja það að eiga erfitt með að lesa bækur og þá sérstaklega skólabækurnar, þar sem við lesum og erum annars hugar og höfum ekki hugmynd um hvað við vorum að lesa. Sumir eru það týndir að þeir geta ekki einu sinni lesið stutta grein í morgunblaðinu án þess að byrja að hugsa um eitthvað annað.

Hugleiðsla

Hugleiðsla er að vera til staðar í augnablikinu, að njóta sín og vera þar sem við erum, bæði líkamlega og andlega. Hugleiðsla er einfaldlega að leiða hugann að því sem við erum að gera og er mjög einföld en mörgum reynist samt sem áður erfitt að vera með sjálfum sér
Með hugleiðslu aukum við einbeitinguna og hún hjálpar okkur að slaka á innra með okkur og við lærum að skilja betur okkur sjálf og aðra. Hugleiðsla hjálpar okkur að vinna úr daglegri röskun eða truflun í lífinu á hljóðlegan og friðsælan hátt. Hugleiðsla hjálpar okkur einnig að skapa kyrrð, frið og ró innra með okkur og endurheimta orkuna okkar aftur.

Hvernig á að hugleiða?

Hugleiðslu er hægt að stunda  sitjandi, liggjandi, í líkamsstöðum eða jafnvel á göngu. Fyrir marga er krefjandi að vera stunda hugleiðslu en þá er mjög gott að byrja á hugleiðslu á hreyfingu. Aðalatriðið er að okkur líði vel og við verðum ekki fyrir truflun. Gott er að skapa sér það umhverfi þar sem við getum auðveldlega verið með okkur sjálfum.

Rope yoga og hugleiðsla

Í Rope Yoga stundum við hugleiðslu á hreyfingu. Þegar við förum í gegnum æfingarnar beitum við fullri athygli og tökum eftir upplifun okkar og reynslu eins og öndun, hvernig líkaminn snertir gólfið eða dýnuna og tökum eftir þeim líkamshlutum sem dragast saman og víkka með æfingunum. Einnig fylgjumst við með hugsunum okkar og öllu því sem kemur upp í hugann án þess að láta það trufla okkur. Ef hugsanir okkar byrja að trufla okkur þá leitum við aftur til miðjunnar sem getur verið andardráttur okkar, kviðurinn eða tala fjölda æfinganna.
Rope Yoga eru mjög öflugar líkamlegar æfingar en æfingarnar eru bara helmingurinn af   kerfinu þar sem hugmyndafræði og hugleiðsla skipa stóran sess eða 50% af æfinarkerfinu. Tilgangur Rope Yoga  er að vera til staðar í augnablikinu gagnvart öllu því sem að heimurinn hefur upp á að bjóða og að stunda æfingarnar, njóta stundarinnar og láta sér líða vel. Þetta snýst ekki um ákveðin markmið eða eitthvað sem þarf að takast.  Við tökum eftir öllu því sem kemur upp á meðan á æfingunum stendur, hvort sem um er að ræða sársauka eða gleði.  Allt sem gerist hjá okkur á meðan við iðkum Rope yoga er rétt og til að geta slakað á verðum við fyrst að taka eftir því sem er fyrir okkur, t.d. spennu eða sársauka.


Andleg þjáning birtist í líkamanum

Allir líkamlegir verkir og eymsli byrja í huga okkar þó að það geti birts við líkamlega vinnu eða æfingar eða jafnvel árekstra eða föll.   
Það er gott fyrir okkur að kunna að slaka á og anda meira og þá erum við fær í hvaða líkamlega vinnu sem er. Tökum sem dæmi þegar við erum stíf í herðunum, okkur dettur fyrst í hug að það komi frá vinnu okkar t.d. við tölvur Í stað þess að kenna vinnunni um, skoðum frekar  hvers vegna við erum að fá í herðarnar núna.  Ástæðan getur verið allt önnur þó svo að hún birtist þegar við sitjum allan daginn við tölvuna. Það sem að birtist í herðum okkar og hálsi er höfnun og tjáningarskortur. Við erum oft svo hrædd við höfnun að við höfnum okkur sjálf og hún getur birts á ótalvegu, t.d. gætum við verið hrædd við að einhver fari frá okkur, reki okkur úr vinnunni, líki ekki við okkur eða að við séum ekki nógu góð eða stöndum okkur ekki nógu vel.

Byrjaðu núna!
Á sama hátt og við æfum vöðvana okkar þá æfum við einnig hugleiðslu og því oftar sem við komum inn í augnablikið því auðveldara verður að vera þar.  Við hvetjum ykkur því til að leggja frá ykkur blaðið núna, loka augunum og koma inn í augnablikið.  Tengist önduninni, finnið hvernig þið andið inn og út.  Skoðið hvað þið finnið, upplifið og heyrið án þess þó að dæma það.  Augnablikið er núna.


Elín Sigurðardóttir og Margrét Ýr Einarsdóttir, rope yoga kennarar hjá elin.is Bæjarhrauni 2 .