Setja á Facebook
Vilt þú í raun betra líf?

Vilt þú í raun betra líf?
Við erum eins og við viljum vera. Hvort sem að við erum meðvituð um það eða ekki þá langar okkur ekki öllum að líða vel. Flest okkar viljum við vera í drullupollinum sem við erum í. Erum við ekki flest eða öll að upplifa tilfinningar eins og  reiði, biturð, afbrýðisemi, gagnrýni, dóma, kvíða og ótta? Eða það sem við í Rope Yoga köllum sjálfsvorkunn. Við teljum okkur trú um að við viljum lifa betra lífi en þegar á reynir þá erum við ekki tilbúin til þess að sleppa þessu hugarfari sem er mjög ríkjandi í lífi okkar eða breyta matarvenjum okkar og lífsháttum. Vitandi að þetta þarf til þess að öðlast betra líf.

Nærumst við á sjúk”dómum”?
Það er algengt að einstaklingar nærast á sjúkdómum sínum, veikindum og eymslum. Þeim finnst fátt skemmtilegra en að segja frá því og líður best í sinni eigin vorkunn og væli. Það hefur ekkert með sjúkdóma að gera hvort að við erum sjúklingar eða ekki. Þeir sem upplifa sig sem  sjúklinga hafa gert sig að fórnarlömbum, tekið á sig
sjúk”dóminn” og næra það ástand. Allt sem við veitum athygli að vex og dafnar.

Matur er besta lyfið.
Matur og hvernig við nærum okkur hefur mikil áhrif á heilsu okkar og getur skipt sköpum hvort að við lifum eða deyjum. Matur er öflugasta lyfið sem við getum notað til þess að borða okkur annað hvort til heilbrigði eða til óbóta og jafnvel til dauða. Þetta er svo skýrt, en hver er tilbúinn að opna augun núna og vera breytingin sem til þarf til að lifa góðu lífi?
Við höfum alltaf val.
Einstaklingar með banvæna sjúkdóma eins og krabbamein hafa gert breytingar á sínu lífi og gjörbreytt mataræði sínu með stuðningi fjölskyldu og vina í umhverfi þar sem þeir fá stuðning og kennslu í heilsulind. Fram koma miklar og mælanlegar breytinar eins og minnkandi æxli og betri líðan. Þegar þessir einstaklingar koma síðan heim til sín eru eingöngu 2% af þeim sem eru tilbúnir til þess að halda áfram og tileinka sér þennan lífsstíl. Hvað segir þetta okkur? Viljum við í raun vera heilbrigð? Við höfum alltaf val.

Elskum okkur og treystum.
Líkami og hugur eru ein heild. Þjáning líkamans er þjáning hugans. Ef viljum ná líkamlegum bata þá verðum við að byrja á því að elska okkur og treysta. Um leið og það kemur jafnvægi á hugann þá kemur jafnvægi í líkamann. Þegar við elskum okkur erum við tilbúin og veljum hreinan og náttúrulegan mat og nýtum næringarefnin betur.

Verum hamingjusöm.
Að vera í góðu formi hefur ekkert með góða heilsu að gera. Ef við viljum njóta lífsins, vera hamingjumsöm og í ást þá komumst við ekki hjá því að næra og rækta líkama, huga, sál og tilfinningar. Leyfum okkur að elska og leyfum okkur að vera elskuð. Ef að við erum ekki tilbúin til þess að elska okkur þá getum við í það minnsta byrjað á að vera vinir okkar.


Elín Sigurðardóttir og Margrét Ýr Einarsdóttir, rope yoga kennarar hjá elin.is Bæjarhrauni 2