Setja á Facebook
Hámarksnýting næringar

Hámarsnýting næringar.
Taktu ábyrgð á heilsu þinni og byrjaður að næra þig og líkama þinn af ást og umhyggju.
Þú hefur um tvennt að velja, að blóta matnum sem þú borðar eða blessa hann.

Þegar þú blótar matnum og gefur matnum aukið vald þá verður samdráttur í líkamanum og við nýtum næringuna mun síður úr fæðunni þó svo að fæðan sé næringarmikil.
Hvað erum við þá að næra? Kannski óttann og samviskubikið? Það er mjög algengt að við borðum af vana og af því að okkur leiðist.
Sjaldnast þurfum við á öllum þessum mat að halda og all flestir hugsa betur um bílinn sinn.

Við setjum bara það bensín á bílinn sem við þurfum á að halda en troðum ekki bensín í fleyri göt á bílnum bara af því að okkur leiðist eða af því að við erum annars hugar.
Aftur á móti finnst flestum okkar það bara allt í góðu lagi að troða ofan í okkur þó svo að það kosti okkur meira. Það er ekki hægt að borða of mikið, bara nægilega mikið til þess að viðhalda því ástandi sem við erum í.

Við getum bara borðar nægilega mikið til þess að láta okkur líða eins og okkur líður þegar við borðum mikið eða lítið.

Sýnum okkur ást og virðingu.
Ef við blessum matinn okkar þá verður útvíkkun í líkama okkar og við nýtum næringuna betur úr fæðunni.
Þá erum við að næra líkamann og sína okkur ást og virðingu,
Það skiptir miklu máli hvað við borðum til að halda góðri heilsu en það skiptir sennilega ennþá meira mála hvernig við borðum.
Gott er að hafa í huga hvað það er sem við erum að næra þegar við erum að borða. Við getum verið að horfa á sjónvarpið eða lesa blöðin þegar við erum að borða en þá erum við ekki til staðar þegar við borðum og þá erum við bara að næra fjarveruna.

Prófaðu að vera til staðar þegar þú borðar næst og veittu hverjum munnbita fulla athygli og tyggðu matinn vel.
Lærðu að brenna því sem þú borðar í dag og hættu að hafa endalausar áhyggjur af því hvað þú ert að borða.
Gerðu þitt besta og nærðu þig á ást, kærleik, þakklæti og vitund.

Þú ert eins og þú vilt vera.
Hvort sem að þú trúir því eða ekki að þá ert þú hvorki feitari né grennri enn þú vilt vera.
Við erum nákvæmlega eins og við viljum vera. Hugsaðu bara um þessa staðreynd næst þegar þú borðar meira heldur en þú þarft á að halda.
Það er engin sem treður ofan í okkur nema við sjálf.

Hvað erum við að næra?
Þegar við hættum að næra tilfinningarnar og vanann og byrjum að næra líkamann af ást og umhyggju byrjar líkaminn að breytast og við sækjumst í næringarríkari fæðu.
Það skiptir ekki mála hversu hollan mat við borðum, ef við borðum hann með sjálfsgagnrýni og í ótta og skömm, þá verðu öll úrvinnsla minni og upptakan á næringunni lélegri.

Tyggjum og tyggjum.
Gott er að tyggja matinn vel vegna þess að þegar við tyggjum matinn þá framleiðum við munnvatn og í munnvatninu eru ensím og meltingin byrjar í munninum.
Munnvatnið er meltingarvökvi og það vinnur betur þegar við blöndum ekki öðrum vökva við munnvatnið.

Þess vegna er betra að drekka ekki með mat.
Það tekur líkamann einnig 20 mín. að átta sig á því hort að við séum orðin mett eða ekki.
Þess vegna er betra að tyggja matinn vel og borða rólega.

Ábendingar.    
Nokkrar góðar ábendingar. Nærum okkur á ást, umhyggju og virðingu.
Tyggjum matinn vel. Verum til staðar þegar við borðum.
Drekkum vökva þegar við erum búin að borða. Borðum hreinan og náttúrulegan mat.
Blessum matinn og okkur sjálf.
Höfum hreynan ásetning þegar við nærumst.
Við skorum á þig að prófa og finna muninn.

 


Elín Sigurðardóttir og Margrét Ýr Einarsdóttir, rope yoga kennarar hjá elin.is Bæjarhrauni 2