Setja á Facebook
Þakklæti

Við veljum hvernig okkur líður.

Öll orð og allar hugsanir hafa orku eða tíðni. Mismunandi orð gefa frá sér mismunandi tíðni eða orku og öll þessi orka hefur áhrif á líkamann okkar og huga. Þetta hefur verið sannað vísindalega með vatnakristöllum sem er búið að mynda í gegnum smásjá. Orðin þakklæti og kærleikur eru þau orð sem mynda fallegustu kirstallanna. Þau eru grundvallarlögmál náttúrunnar og lífsundursins.


Tileinkum okkur kærleika og þakklæti.
Með því að tileinka okkur kærleika og þakklæti erum við að skapa frið í huga okkar og höfum þar með áhrif á líf okkar, líkama og heilsu. Við erum að byggja upp og sameina.
Hins vegar ef við blótum, rökkum fólk niður, meiðum og hæðum erum við að skapa sundrungu þar sem þessi orð eru afsprengi ómenningar og eru ekki til í náttúrunni.

Við erum skaparar.
Tilgangur mannkynsins er að uppgvötva frjálsan vilja. Áttum okkur á því að það er undir okkur sjálfum komið hvernig lífi við lifum, hvernig okkur liður og hvernig umhverfi okkar er.
Við erum skaparar og við erum öll að vinna saman að því að skapa eina heild og frið á jörð þar sem við getum öll búið í sátt og samlyndi.

Öll stríð byrja í huga okkar.
Hættum að klekkja á samferðamönnum okkar og ljúga að okkur að þeir hafi átt refsinguna skilið. Þegar við klekkjum á samferðamönnum okkar erum við líka að klekkja á okkur sjálfum. Öll stríð byrja í huga okkar og þar getum við líka skapað frið og verið fordæmi fyrir aðra. Okkar er valið. Þannig getum við lagt okkar af mörkum við að gera heiminn að betri stað til að búa á. Því fleiri sem verja orku sinni í þakklæti og kærleika því meira af þakklæti og kærleika löðum við að í lífi okkar. Við minnum ykkur á að við öll skiptum máli.

Hvað er að vera í velsæld?
Það er til nóg af öllu fyrir alla og sem betur fer viljum við ekki öll það sama. Við þurfum bara að vera vakandi og hafa hugrekki til þess að sjá það. Er ekki komin tími til að vakna til vitundar, taka ábyrgð, skipuleggja líf okkar og standa við gefin loforð svo að við getum leyft okkur fulla birtingu. Byrjum á því að segja sannleikann og þakka fyrir það sem við erum höfum og eigum. Hættum að vorkenna okkur og væla fyrir það sem við höfum misst eða eigum ekki eða erum  og getum ekki. Gerum okkur grein fyrir því hvað það er sem að mestu máli skiptir í lífinu. Hvað er að vera í velsæld og vera auðugur? Við vitum það öll en gleymum því bara allt of oft. Í hvert sinn sem að við stöndum okkur að því að vorkenna okkur hugsum þá um það sem við erum þakklát fyrir og hvað það er sem við eigum. Við getum öll, ef við viljum, fundið eitthvað sem við erum þakklát fyrir. En að sjálfsögðu verðum við að vilja það. Þegar við uppgötvum að við höfum val að þá höfum við öðlast vald okkar aftur og byrjum að lifa hamingjusömu og ánægulegu lífi, laus við kvíða, ótta og áhyggjur.

Sagan af kaupmanninum.
Kaupmaður sem er búinn að reka búðina sína í nokkur ár og það gekk mjög vel á meðan á “góðærinu” stóð og búðin blómstraði hjá honum. Það var eins og hendi hefði verið veifað og “kreppan” skall á og það snarminnkaði salan og búðin fór að ganga illa. Kaupmaðurinn var svo upptekinn af þeim sem ekki komu að versla hjá honum, hann veitti þeim mesta athygli, hann veitti skortinum athygli, salan fór minnkandi og minnkandi og kaupmaðurinn varð svartsýnn og neikvæður þangað til að hann heyrði eina setningu sem gjörbreytti lífi hans og það var setninginn “allt sem þú veitir athygli vex og dafnar.” Þannig að kaupmaðurinn byrjað að þakka fyrir hvern einasta viðskiptavin sem verslaði hjá honum. Hann veitti honum fulla athygli og sinnti honum vel. Kaupmaðurinn tók eftir því strax á fyrsta degi að orka hans og tíðni sem að hann sendi frá sér breyttist. Hann byrjaði að laða að sér fleiri viðskiptavini með degi hverjum. Hann fann að útgeislun hans hafði breyst og hann var jákvæður og það vildu alltaf fleiri og fleiri versla við hann. Litla búðin hans á horninu hafði aldrei verið eins vinsæl þó að það væri ennþá “kreppa”.
Kaupmaðurinn hugsaði með sér: “Vá, þetta er það besta sem hefur komið fyrir mig í langan tíma. Ég var nefninlega búin að týna sjálfum mér, ég hafði enga ástríðu lengur og ég var hættur að brosa. Ég var bara að upplifa græðgi. Núna man ég hver tilgangur minn er og litlu verslunarinnar minnar. Núna er ég þakklátur og hugsa bara um það eitt hvernig ég get þjónustað viðskipavininn sem best og hvernig ég get breytt og haft áhrif á alla mina tilveru. Ég er fullur af ástríðu og ég vakna á hverjum morgni fullur tilhlökkunnar um að mæta í vinnuna og það sem  meira er að allir verkir úr líkama mínum eru horfnir. Mér líður alls staðar vel.

 



Elín Sigurðardóttir og Margrét Ýr Einarsdóttir, rope yoga kennarar hjá elin.is Bæjarhrauni 2