| Framganga |
|
Framganga Þú geislar frá þér hver þú ert. Hefur þú einhvern tímann leitt hugann að því hvaða hugmyndir þú hefur um sjálfan þig? Við geislum eða vörpum út frá okkur hver við erum og fer það eftir því hvaða hugmyndir við höfum um okkur sjálf. Þegar hugsanir okkar eru fylltar af ótta og vanvirðingu er vörpun okkar í samræmi við það. Við berum okkur, klæðum okkur og nærum okkur í samræmi við þær hugmyndir við höfum um okkur. Við löðum að okkur fólk og reynslu sem okkur finnst við eiga skilið.Við leyfum okkur framgöngu.Þegar við höfum ákveðið tilgang okkar í lífinu, sett okkur markmið sem við trúum á af heilum hug og stöndum við heitbindingar okkar gagnvart sjálfum okkur og öðrum þá fyrst byrjum við að leyfa okkur framgöngu. Með því að leyfa okkur framgöngu í lífinu upplifum við velgengni, velsæld, virðingu og ást. Þegar við erum heiðarleg og segjum sannleikann þá höfum við ekkert að fela og þá mun alheimurinn aðstoða okkur í ferð okkar í gegnum lífið. Það er eins og hlutirnir falli allir niður í sama pússlið og myndi eina heild. Leið okkar að markmiðum okkar verður áreynslulaus og við leyfum hlutunum að vera eins og þeir eru. Við höfum sleppt viðnáminu og elskum okkur eins og við erum. Við ásökum hvorki aðra né okkur sjálf um stöðu mála hjá okkur. Við treystum því að það sem við erum að ganga í gegnum sé nákvæmlega það sem við þurfum á að halda til að læra, þroskast og dafna og við treystum því að það besta muni verða.Berð þú virðingu fyrir þér?Þegar við spyrjum okkur hvaða hugmyndir við höfum um okkur sjálf, getur svarið vafist fyrir mörgum. Það er munur á að bera virðingu fyrir sjálfum sér og elska sjálfan sig skilyrðislaust og að VILJA bera virðingu fyrir sjálfum sér og elska sjálfan sig skilyrðistlaust. Flestir gera sér ekki grein fyrir því að hugsanir þeirra eru fylltar af ótta og vanvirðingu, sem dæmi: ég er ekki nógu falleg/ur, grönn/grannur, stend mig aldrei nógu vel o.s. frv.Hvað átt þú skilið?Þegar við vörpum þeirri spurningu fram “Hvað átt þú skilið?” Þá er svarið oftast “ég á allt gott skilið” en í mörgum tilfellum þá haga þessir sömu einstaklingar sér alls ekki í samræmi við svarið, þar sem þessir einstaklingar svívirða stöðugt sjálfan sig. Við eigum ekkert betra eða verra skilið en það sem við teljum okkur sjálf eiga. Hvort sem við höldum því fram að við séum verðug eða einskis virði þá höfum við rétt fyrir okkur.Þegar við höldum því fram að við séum einskis verð og það elski okkur enginn að þá byrjum við að lifa inn í þann veruleika og haga okkur þannig og þá hrindum við frá okkur ást, ástvinum og velgengni. Sama á við að ef við virðum okkur, vitum hversu mögnug við erum, göngum upprétt og bein í baki, horfum framan í fólk þegar við tölum við það, þá löðum við að okkur ást, virðingu, velgengni o. s. frv. Hvað telur þú þig eiga skilið? Kemur þú fram við þig í samræmi við það? Ert þú tilbúin að bjóða til þín allt það sem að hjarta þitt girnist?
|





