| Segðu alltaf sannleikann. |
|
Segðu alltaf sannleikann Innsæið er 6. þrepið í Rope yoga hugmyndafræðinni. Þegar við höfum farið í gegnum fimm fyrstu þrepin þ.e. vitund, ábyrgð, ásetningur, trúfesta og framganga, þá fer innsæi að birtast okkur. Innsæi er leiftur sem birtist okkur og hverfur um leið og við byrjum að hugsa. Innsæi er þegar við hlustum á hjarta okkar og tilfinningar. Við getum lært að hlusta á innsæi okkar í stað þess að hafna því eða hrinda því frá okkur í hvert skipti sem það birtist okkur.Hlustaðu á innsæi þitt.Við höfum talað um það í fyrri greinum að setja sér markmið og standa við heitbindingar okkar, sem er gott að gera, en samt sem áður þá er einnig nauðsynlegt að hlusta á innsæið sitt. Það getur alltaf eitthvað breyst sem við sáum ekki fyrir og þá getur verið nauðsynlegt að breyta eða setja sér ný markmið. Við notum því innsæi okkar til að færa okkur aftur inn á rétta braut ef við höfum farið út af brautinni Það er í lagi að skipta um skoðun.Algengt er að við samþykkjum ýmislegt sem okkur langar ekki til að samþykkja eingöngu vegna þess að við óttumst að særa eða móðga einhvern. Segðu alltaf sannleikann og þegar við segjum sannleikann þá getum við ekki sært nokkurn mann. Það er á ábyrgð hvers og eins hvernig hann tekur sannleikanum og hvort að hann upplifi höfnun. Það kemur fyrir að við erum búin að gefa loforð og finnst við þurfa að standa við það þrátt fyrir að innsæið okkar segir eitthvað annað. Aðstæður geta alltaf breyst eða tilfinningar okkar og innsæið. Það er því réttur okkar að skipta um skoðun ef hjarta okkar segir svo.. Við höfum ekkert að fela.Þegar við erum heiðarleg og segjum sannleikann þá höfum við ekkert að fela og þurfum þar af leiðandi ekki að óttast að upp um okkur komist eða að særa einhvern. Þegar við byrjum á að segja ósatt þá er auðvelt að flækjast í lygavef sem veldur spennu og ótta hjá okkur sjálfum og vindur oft upp á sig. Það krefst hugrekkis að segja sannleikann og þá höfum við ekkert að óttast, alveg sama hvað kemur upp á í lífi okkar. Hlustum á hjarta okkar.Við hættum að taka okkur hátíðlega og hlutina persónulega. Það er alveg sama hvað öðrum finnst eða hvað aðrir segja við okkur við tökum það ekki nærri okkur því að við vitum að við erum að segja sanneikann. Við hlustum á hjarta okkar og erum þar af leiðandi eins og opin bók og það mega allir lesa okkur. Við erum óháðir athugendur sem hvorki dæma né draga í dilka.
|





