Setja á Facebook
Ég lenti í bílslysi þegar ég var barn..
Föstudagur, 20 Október 2006 00:00

Ég lenti í bílslysi þegar ég var barn.
Það keyrði á mig olíubíll. Ég slasaðist mjög illa á fæti, margbrotnaði bæði á legg og læri.

Það styttist á mér fóturinn og öklann hef ég aldrei getað kreppt og beygt nema að hálfu. Þessi meiðsli hafa háð mér alla tíð en þó meira núna í seinni tíð en það gerir aldurinn.

 

Ég er orðin vön óþæginunum og verkjunum og hef innst inni sætt mig við þetta ástand.

Eftir að ég byrjaði í haust aftur í Rope Yoga hefur mér liðið miklu betur og sérstaklega hefur stirðleikinn í liðunum minnkað ,
ég er meira meðvituð um að mér getur liðið betur og ég á að veita mér þá ánægju þannig að greinilega hefur hugafarið breytst líka.
Einnig er ég mikið betri af vöðvabólgu sem hefur háð mér í nokkur ár.

Svo er náttúrulega ekki hægt annað en að gefa þér Elín mín hrós fyrir hvatningu og sérstaklega ánægjulega og góða tíma.
Þetta var bara smá viðbót við umsögn mína sem ég skrifaði 29.04.2005.

Kær kveðja,
Ruth Árnadóttir