Setja á Facebook
Heimspeki

Rope Yoga kenningin snýst um þakklætis hugarástand. Og kenningin er einföld.  "Verum breytingin."  Rope Yoga gengur útá það að við séum breytingin sem til er ætlast og að við veljum viðbragð, sem gengur útá að taka ábyrgð á því sem maður ætlast til að framtíðin beri í skauti sér.

Grunnhugsun þess að taka ábyrgð er sú að vera til staðar í augnablikinu.  Þegar við erum til staðar í augnablikinu, þá höfum við og getum notað frjálsan vilja eða óhindrað val, sem er eitt það stórkostlegasta vald sem maðurinn hefur aðgang að.  Við byrjum að velja og ætla framtíð okkar og hlutskipti í beinu samhengi við það sem við teljum að við verðskuldum í lífinu.

Flest fólk sem ég hef hitt og unnið með í gegnum tíðina hefur það sameiginlegt að vilja lifa hamingjusömu og ánægjulegu lífi – flestir vilja hafa öruggan stað í tilverunni, bæði líkamlegan og andlegan.  Að finna eða nálgast þennan örugga og hamingjusama stað í tilverunni er oft þrautin þyngri, því mannfólkið á það til að flækja lífið óþarflega mikið og oft á tíðum týnast í eigin tilvist.

Ropeyoga heimspekin býður hinsvegar uppá sáraeinfalda leið til að ráða frammúr þessari tilvistarkreppu, sem svo mörg okkar eru að kljást við daglega. Lífið er ekkert annað en ferli sem þarf að sinna og rækta.  Við vitum öll að vélar og verkfæri endast lengur og gegna betur hlutverki sínu ef vel er um þau hirt. Það sama á við um huga okkar og líkama.

Allt sem við þurfum til að öðlast hamingju í lífinu er að vera til staðar og sýna tilverunni fulla athygli og umfram allt VILJA BREYTINGU.  Þegar þau skilyrði eru til staðar, þá byrjum við að skapa okkur þá tilvist í lífinu sem við öll ásælumst.

Ropeyoga er kerfi vellíðunar og þjálfunar sem tekur beint á gagnkvæmum tengslum líkama og hugar. Hugsanir og gjörðir falla saman við heimspeki og iðkun til að skapa verundarástand sem eflir lífsfyllingu og hamingju. Að sama skapi þá sameinar Ropeyoga öndun, hreyfingu og hugsun.  Þessi sameining öndunnar og hreyfingar hefur þrek og heilsu upp í nýjar hæðir og iðkendur sjá sjálfa sig í nýju ljósi og öðlast þar af leiðandi mátt til að skapa nýjan og gjöfulan veruleika.

Með öðrum orðum, Ropeyoga er aðferð til að uppgötva, vinna úr og losna undan líkamlegum og andlegum takmörkunum, sem yfirleitt eiga rætur sínar að rekja í meðvitaðan ótta, bælingu og ranghugmyndir sem við höfum lengi bælt og haldið föstum í kviði okkar. Það er margsannað mál að það sem við hugsum um er sá raunveruleiki sem við búum í.  Til dæmis, þá höfum við öll verið einhvern tíma í neikvæðu skapi og þá er einsog allt í kringum okkur verði neikvætt – það gengur einfaldlega ekkert upp.  Að sama skapi, ef við hugsum jákvætt, þá bregst tilveran jákvætt við gjörðum okkar. Hugsanir, orð og gjörðir skapa veruleikann og afleiðing þess er líf einstaklingsins og örlög.

Ropeyoga kerfið þróar einnig og magnar upp sveigjanleika hugans og eflir líkamshreyfingar í átt til opnunar.  Við búum öll yfir þeim hæfileika að geta unnið úr líkamlegum og andlegum festum í lífinu og að geta breytt lífshlaupinu með því að endurskipuleggja hugsanir okkar og gjörðir. Fortíðin hefur ekkert vald yfir okkur nema þegar við gefum valdið frá okkur og lifum í fortíðinni.  Við hættum til dæmis ekki að skíða vegna þess að við dettum einu sinni í brekkunni.  Við forðumst hinsvegar að gera sömu mistök aftur og um leið verðum við betri skíðamenn.  Það sama á við um lífið og einmitt þess vegna erum við okkar eigin skaparar.  Ef við á hinn bóginn látum mistök og fyrri syndir stýra lífi okkar, þá verðum við aldrei hamingjusöm.

Ropeyoga er því leið til umbreytingar. Að vera umbreytingin jafngildir því að beita frjálsum vilja, sem er öflugasta tæki mannsins til að taka ábyrgð á framtíð sinni – það að vera til staðar og til taks og nota getu sína til að velja og ætla án fordóma eða bindingar. Þessi afstaða laðar að hagsæld og gnótt á öllum sviðum.

Heilsa er einungis ástand hugar og líkama, en hefur ekkert með hnignum og sjúkdóma að gera. Þegar við lifum í núinu, með minni mótþróa og í ríkari sátt við okkur sjálf, þá tökumst við á lífinu einsog það er, en ekki byggt á þeim hugmyndum sem samfélagið setur okkur.  Ropeyoga tekur því á öllum hugsunum einstaklingsins og eyðir þeim hugsunum, orðum og gjörðum sem valdið geta sjúkdómum og hrörnun; með öðrum orðum, athyglinni er beint að frjálsum vilja og meðvituðu vali.

Ropeyoga er einfalt og öflugt kerfi sem stuðlar að heilbrigðu lífi.  Við nefnum það aðgæsluhreysti; ástand dýpri vellíðunar, betri árangurs og gnóttar sem leiðir til lifandi lífs (að lifa lífinu lifandi).

Þeir sem ástunda Ropeyoga fylgja eftir hvetjandi sjö þrepa kerfi, sem vekur þá til umhugsunar. Hér er stiklað á stóru um skrefin sjö.
 

 

1. þrep - AÐ VAKNA TIL VITUNDAR
Hvaða lærðu venjur hefur þú búið til, meðvitað eða ómeðvitað, þegar kemur að hugsunum, tilfinningum eða gjörðum? Hvaða hugmyndir hefur þú um sjálfan þig, um aðra eða um heiminn? Bara það að vera meðvitaður um hver þú ert, hugmyndir þínar eða venjur er sannarlega gott upphaf. Ef við erum ekki vakandi, þá getum við ekki valið viðbragð, heldur einungis brugðist við á tiltekinn hátt. Aðeins þeir sem eru vakandi eiga möguleika á að velja viðeigandi viðbrögð.

 

 

2. þrep - AÐ VERA ÁBYRG(UR)
Það er mikilvægt að vita hvernig maður á að bregðast við. Þegar þú velur viðbragð þá gerirðu það ekki lengur af áráttu eða af gömlum vana. Í staðinn ertu fær um að skipuleggja eigin hugsanir og stýra orku þinni í réttan farveg. Þú getur haft áhrif á framtíð þína og þrár. Taktu fulla ábyrgð á sjálfri þér/sjálfum þér og vertu skapari þinna eigin örlaga.

 

 

3. þrep - ÁSETNINGUR ÞINN
Fyrst verðum við að ákveða hvað við viljum og ágirnumst og síðan að setja okkur markmið sem við trúum á af heilindum. Ímyndaðu þér markmið þín í huganum, til síðasta smáatriðis, eins og þeim hafi þegar verið náð. Þannig skapar þú þína eigin framtíð; með ásetningi og tilgangi. Þegar þú kemur skipulagi á eigin hugsanir og beinir þeim í ákveðinn farveg, þá ertu að velja viðbragð og taka ábyrgð. Þú ert Skaparinn.

 

 

4. þrep - TRÚFESTA
Um leið og við einbeitum okkur algerlega að ætlunarverkinu höfum við gert samning við hið heilaga. Á því augnabliki tekur alheimurinn okkur alvarlega og byrjar að vinna með okkur. Þegar þú lofar einhverju þá ertu ekki aðeins að skuldbinda sjálfan þig og aðra, heldur einnig að tengjast því heilaga, sameinast eigin orkulindum og bæta tengingu þína við alla þá sem þú  átt samskipti við.

 

 

5. þrep - AÐ LEYFA FRAMGANG
Skuldbinding þín endurspeglast í aðgerðum þínum, sem er fimmta þrepið. Daglegar gjörðir auka skuldbindinguna og færa þig nær settum markmiðum. Markmið þín og ásetningur eru vegvísar þínir. Þú þarft að sjálfsögðu að halda réttri stefnu og aðlaga þig að mismunandi aðstæðum á ferðalaginu. Með því að vera hjálpleg erum við um leið verðug og móttækileg. Þannig er hringrás uppljómunar og sköpunar tryggð. Fylltu líf þitt og annarra með orku, örlæti, góðmennsku og samúð.

 

 

6. þrep - INNSÆI
Svo framarlega sem þú staðfestir og endurtekur bæði skuldbindingar þínar og ásetning, þá skaparðu aðstæður og tækifæri sem hjálpa þér að vaxa og læra. Þegar þú ferð í gegnum fyrstu fimm þrepin getur verið að innsæi birtist þér í ýmsum myndum sem hafa áhrif á markmið þín og aðgerðir. Ekki hafna þessum tilfinningum, heldur taktu þeim opnum örmum. Með þessu móti færðu tækifæri til sjálfsskoðunar en hafnar um leið bælingu og sjálfsafneitun þegar á móti blæs. Þú þarft ekki lengur að veita viðnáminu viðnám.

 

 

7. þrep - ÞAKKLÆTI
Þegar við lifum í sífelldu þakklæti og njótum okkar sjálfs, óháð öðru eða öðrum, þá erum við uppljómuð. Þetta sjöunda og síðasta þrep er því takmark okkar allra. Að vera uppljómaður þýðir í raun að þú ert ljósið, hinn heilagi guðlegi kjarni sköpunarinnar. Með þá vitneskju lifir þú í augnablikinu og lætur ljós þitt skína jafnt og óháð því sem þú kemur nálægt.